Sigríður Helga Reykjavíkurmeistari í fimmgangi
A-úrslit fimmgangs í 2. flokki á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks voru æsispennandi.
Tveir keppendur reyndust vera jafnir að stigum í efsta sæti en eftir dómararval stóð Sigríður Helga Sigurðardóttir á Brjáni frá Akranesi uppi sem sigurvegari. Hún varð jafnframt Reykjavíkurmeistari. Önnur, jöfn að stigum, varð Aníta Lára Ólafsdóttir á Sleipni frá Runnum.
Nánari úrslit birtast hér þegar þau berast.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH