Léttleikinn í fyrirrúmi
Hann segir fátt en á tali hans má strax merkja að hann hefur mikla reynslu af málefnum hrossaræktarinnar. John Siiger hefur ræktað hross í tæpa fjóra áratugi og er jafnframt einn reyndasti kynbótadómari á meginlandinu. John er í viðtali í 4. tbl. Eiðfaxa, Stóðhestablaðinu.
Hér er brot úr greininni:
John er spurður um áherslur hans í ræktuninni. Hann hugsar sig um í örstutta stund og svarar því til að hann hafi alltaf lagt áherslu á að rækta alhliðahross sem væru létt á skrokkinn og lipur á gangi. „Ég vil hafa hross taumlétt og auðveld í gengi en nú á seinni árum hef ég lagt aukna áherslu á að þau séu auðveld í reið. Þegar ég var yngri var ekki eins mikil áhersla lögð á þennan þátt en þegar árin hafa liðið þá hefur krafan verið að aukast hjá mér á auðsveipt geðslag því að erfitt er að selja hross sem aðeins færustu menn geta riðið. Hvað byggingarþætti varðar þá vil ég að hrossin séu léttbyggð með góðan háls,“ segir John og ljóst er að talsverð hugsun hefur verið lögð í áhersluatriði ræktunarinnar.
Hrossaræktin á Guldbæk er talsverð en á búinu hafa á undanförnum árum fæðst um tíu folöld á ári. Árangurinn hefur verið góður en af tíu hæst dæmdu hrossum fæddum á búinu eru öll utan eitt fædd eftir árið 2000. Þrjú hæst dæmdu hrossin eru fædd á árabilinu 2005-2010.
Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH