Samræmi -Tíu hross hlutu 9,5
Hylur frá Flagbjarnarholti hlaut 9,5 fyrir samræmi með einkunnarorðunum Framhátt - Afar fótahátt - Hlutfallarétt mynd: Linda Rún Pétursdóttir
Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er samræmi.
Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.
Alls hlutu tíu hross á árinu einkunnina 9,5 fyrir samræmi en ekkert hross hlaut einkunnina 10,0 í ár frekar en fyrri ár en sú einkunn hefur aldrei verið gefinn.
Samræmi
Í þessum eiginleika er heildarútlit hestsins metið hvað varðar jafnvægi, lögun á bol og hlutföll í sköpulaginu. Einnig er lagt mat á fótahæð hrossins, léttleika byggingarinnar og vöðvafyllingu. Í vafatilfellum má taka mið af því við dóminn hvernig hesturinn kemur fyrir í reið, hvað varðar fótahæð, framhæð og jafnvægi.
9,5 – 10
Glæst heildarmynd. Hrossið er jafnvægisgott og sterklega byggt; algerlega hlutfallarétt, afar framhátt, vel vöðvafyllt og nægilega breitt um brjóst. Hrossið er fótahátt og hefur sívalan, jafnan og fremur léttan bol. Lengd hrossins skapast af löngum bógum, hæfilega löngu baki og langri lend, lengd þess er meiri en hæð á lend (viðmið: 4-6 cm munur).
Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir samræmi.
| Nafn | Uppruni | Einkunn |
| Arthúr | Baldurshaga | 9,5 |
| Þór | Torfunesi | 9,5 |
| Hylur | Flagbjarnarholti | 9,5 |
| Álfaklettur | Syðri-Gegnishólum | 9,5 |
| Viðar | Skör | 9,5 |
| Svarta-Perla | Álfhólum | 9,5 |
| Pensill | Hvolsvelli | 9,5 |
| Hávaði | Haukholtum | 9,5 |
| Þenja | Prestsbæ | 9,5 |
| Þór | Stóra-Hofi | 9,5 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH