Seinni yfirlitssýning á Gaddstaðaflötum
Seinni yfirlitssýning héraðssýningar á Gaddstaðaflötum fer fram föstudaginn 10. og laugardaginn 11. júní.
Dagskrá þessara daga og skipulag flokka verður með eftirfarandi hætti:
Föstudagur, kl. 8:00.
7v. og eldri hryssur
6v. hryssur – Fyrstu 10 holl.
Hádegishlé
6v. hryssur – efstu 3-5 holl.
5v. hryssur
Kaffihlé
4v. hryssur
4v. stóðhestar
5v. stóðhestar
(Áætluð sýningarlok milli kl. 19 og 20 á föstudegi).
Laugardagur, kl. 8:00.
6v. stóðhestar
7v. og eldri stóðhestar
(Áætluð sýningarlok milli kl. 10 og 11 á laugardegi).
Yfirlitssýningar eru álitlegur kostur fyrir ræktunarfólk til að sjá mikinn fjölda hrossa í samanburði og vorsýningarnar upptaktur þeirrar hrossaveislu sem landsmót á Vindheimamelum verður sannarlega. Ath. að hollaröð yfirlitssýningar má sjá á www.bssl.is síðla kvölds á síðasta dómadegi (fimmtudaginn 9. júní). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Búnaðarsambandi Suðurlands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH