Prúðleiki – 9 hross hlutu einkunnina 10,0

  • 14. september 2020
  • Fréttir

Laxnes frá Ekru var einn af þeim sem hlaut 10,0 fyrir prúðleika. Hér situr Konráð Valur hestinn og hjá honum stendur Ragnar Hinriksson mynd: Aðsend

Nú þegar kynbótasýningum er lokið er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er prúðleiki.

Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.

Alls hlutu 49 hross á árinu einkunnina 9,5-10 fyrir prúðleika og þar af 9 sem hlutu 10,0.

Prúðleiki á fax og tagl

Við einkunnagjöf fyrir prúðleika er metin sídd og þykkt á ennistoppi, faxi og tagli hestsins. Almennt eru gerðar minni kröfur til hryssna en stóðhesta. Sá dómaleiðari sem á eftir kemur miðast við stóðhesta en hryssur fá almennt hálfum hærra fyrir sambærilegan prúðleika.

9,5 – 10

Afar ræktarlegur prúðleiki. Góð þykkt er á ennistoppi, faxi og tagli. Ennistoppur nái vel niður fyrir augu, fax er sítt beggja vegna og taglið nær niður á kjúkur. Jafn vöxtur er á faxi frá hnakka og niður á herðar.

 

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 – 10 fyrir prúðleika

 

Nafn Uppruni Einkunn
Hrauney Bakkeholm 10,0
Heljar Brekknakoti 10,0
Laxnes Ekru 10,0
Eldjárn Skipaskaga 10,0
Sviðrir Reykjavík 10,0
Teningur Víðivöllum-Fremri 10,0
Djákni Skipaskaga 10,0
Kakali Garðsá 10,0
Bjarkar Musö 10,0
Kolur Bakcome 9,5
Álfur Granmyra 9,5
Hróður Gröna Gangen 9,5
Æði Allemansangen 9,5
Galsi Knutshyttan 9,5
Djasn Asgarden 9,5
Ögri Austurkoti 9,5
Hvítserkur Syðra-Kolugili 9,5
Freyja Velli II 9,5
Una Ánabrekku 9,5
Blesi Heysholti 9,5
Pensill Hvolsvelli 9,5
Hlekkur Flagbjarnarholti 9,5
Faldur Fellsási 9,5
Þróttur Syðri-Hofdölum 9,5
Ölur Reykjavöllum 9,5
Veigar Skipaskaga 9,5
Lokkadís Syðri-Gegnishólum 9,5
Krókur Stóra-Hofi 9,5
Safír Kvistum 9,5
Rómur Þjóðólfshaga 9,5
Óskabyr Húsavík 9,5
Styrkur Leysingjastöðum II 9,5
Hildibrandur Bergi 9,5
Flugnir Árbakka 9,5
Skorr Þúfu í Landeyjum 9,5
Hylur Flagbjarnarholti 9,5
Kórall Hofi á Höfðaströnd 9,5
Sókrates Skáney 9,5
Röst Akureyri 9,5
Þjótandi Hofsstöðum 9,5
Möttull Túnsbergi 9,5
Andrea Eystri-Hól 9,5
Taktur Rank 9,5
Leiftra Bakkeholm 9,5
Hagalín Engholm 9,5
Óskar Rendborg 9,5
Sólargeisli Vindstaðir 9,5

Dagmar                     Auðsholtshjáleigu        9,5

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link