Brokk – Þrettán hross hlutu 9,5 fyrir brokk í ár
Viðar frá Skör hlaut 9,5 fyrir brokk á árinu með einkunnaorðunum Léttstígt - Mikill fótaburður - Skrefmikið - Ferðmikið - Hvelfd yfirlína. mynd: Louisa Hackl
Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er brokk.
Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.
Alls hlutu 13 hross einkunnina 9,5 fyrir brokk í ár en ekkert hross hlaut 10 í ár.
Brokk
Brokkið er dæmt á öllum þeim hraðastigum sem hesturinn býr yfir, þ.e. frá hægri ferð/milliferð að greiðri ferð. Til þess að hljóta einkunnina 9,0 eða hærra er gerð krafa um að hesturinn sé sýndur á öllum hraðastigum. Hraðabreytingar í góðu jafnvægi geta vegið til hækkunar á einkunnum.
9,5-10
Brokkið er tvítakta, afar jafnvægigott og öruggt með jöfnum hrynjanda hreyfinga. Hesturinn er skrefmikill, með háar og afar léttar, fjaðurmagnaðar hreyfingar og góðu svifi. Hesturinn er framhár, yfirlínan er löng, bakið er burðarmikið og hreyfingin gengur í gegnum bol hestsins. Hesturinn heldur gæðum brokksins á mismunandi hraðastigum; frá hægri að vel greiðri ferð.
Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir brokk.
| Nafn | Uppruni | Einkunn |
| Hátíð | Hemlu II | 9,5 |
| Glampi | Ketilsstöðum | 9,5 |
| Arthúr | Baldurshaga | 9,5 |
| Hremmsa | Álftagerði III | 9,5 |
| Hnokki | Eylandi | 9,5 |
| Hending | Eyjarhólum | 9,5 |
| Viðar | Skör | 9,5 |
| Blakkur | Þykkvabæ I | 9,5 |
| Bryðja | Barkarstöðum | 9,5 |
| Askja | Efstu-Grund | 9,5 |
| Svarta Perla | Álfhólum | 9,5 |
| Kamma | Sauðárkróki | 9,5 |
| Hróður | Gröna Gangen | 9,5 |
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum