Fyrsta vetrarmót Smára
Fyrsta Vetrarmót Smára verður haldið 15. Febrúar á svæði féagsins í Torfdal á Flúðum. Mótið hefst klukkan 14:00 og tekið verður við skráningum á staðnum frá kl 13:00-13:45
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokk (9ára og yngri)
Barnaflokk (10-13)
Unglingaflokk (14-17)
Ungmennaflokk (18-21)
I og II flokk fullorðinna
Unghrossaflokk (hross fædd 2009 og 2010), Unghrossaflokkur mun fara
fram á beinni braut.
Mótin verða þrjú talsins í vetur og safnar knapinn stigum og er því ekki bundinn af að mæta með sama hrossið á öll mótin. Bæði eigandi hests og knapi þurfa að vera virkir félagsmenn í Smára svo þáttaka sé gild.
Skráningargjald er 500kr fyrir hverja skráningu og greiðist á staðnum. Fríar skráningar í Barna og Pollaflokk. – Einungis hægt að greiða með pening.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH