Ísmót á Hrísatjörn

  • 9. febrúar 2015
  • Fréttir
Hringsmenn keppa í tölti, opnum flokki og 100 metra skeiði.

Laugardaginn 14. febrúar blæs Hestamannafélagið Hringur til Ísmóts á Hrísatjörn.

„Keppt verður í tölti, opnum flokki og 100m skeiði. Skráning skal fara fram á hringurdalvik.net í gegnum skráningarformið undir tenglinum „Skráning í mót“ til vinstri á síðunni fyrir kl. 20 fimmtudaginn 12. febrúar. Skráningargjald er 2000 kr. á fyrstu skráningu og 1500 kr. á skráningu eftir það.

Skráningargjald þarf að leggja inná reikning hestamannafélagsins kt. 540890-1029, reikn: 1177-26-175 tilvísun ísmót kvittun sendist á  [email protected]

Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist. Mótið hefst kl 11:00 og skulu knapar vera mættir 10:30

Upplýsingar um mótið veitir Þórir Áskelsson í síma 699-2099 eða á netfangið  [email protected],“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Hring.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link