Sölusýning í Mosfellsbæ – skráning
Stórsölusýning verður haldin í reiðhöll hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ 31. mars nk. í tengslum við Hestadaga í Reykjavík.
Sýningin hefst kl. 20 og verða tuttugu hross sýnd. Ljósmyndir og myndbönd verða birt á sölusíðunni Hestaleit.is þar sem hrossin verða auglýst til sölu, að er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum sölusýningarinnar.
“Í lok sýningar gefst áhugasömum gestum kostur á að tala við seljendur og jafnvel að prófa hesta sem eru á sýningu. Skráningin kostar 5.000 kr og er í símum 896-5777 og 821-2804 og á netföngin [email protected] og [email protected].“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH