Hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði
Davíð Jónsson og Irpa hlutu hæst 8,92 á árinu í gæðingaskeiði
Nú þegar keppnistímabilinu hér á landi er lokið er ráð að taka saman 10 hæstu einkunnir ársins í hverri keppnisgrein og aldursflokki og er þá miðað við einkunn í forkeppni. Það er hæsta einkunn hjá hverju pari sem gildir.
Núna tökum við fyrir hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði PP1.
Hæstu einkunn ársins í opnum flokki á Davíð Jónsson á Irpu frá Borgarnesi en þau hlutu hvorki meira né minna en 8,92 í einkunn á íþróttamóti Geysis. Hægt er að sjá myndband af öðrum sprettinum með því að smella hér.
Í ungmennaflokki er það Benjamín Sandur Ingólfsson og Snilld frá Laugarnesi sem eiga hæstu einkunn ársins en sú einkunn er 7,25.
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum eiga hæstu einkunn ársins í þessari grein í unglingaflokki en þau hlutu 7,58.
Gæðingaskeið PP1 – Opinn flokkur
| # | Knapi | Hross | Einkunn | ||
| 1 | Davíð Jónsson | Irpa frá Borgarnesi | 8,92 | ||
| 2 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | 8,46 | ||
| 3 | Konráð Valur Sveinsson | Tangó frá Litla-Garði | 8,13 | ||
| 4 | Þórarinn Eymundsson | Gullbrá frá Lóni | 8,10 | ||
| 5 | Jakob Svavar Sigurðsson | Ernir frá Efri-Hrepp | 8,08 | ||
| 6 | Árni Björn Pálsson | Óliver frá Hólaborg | 8,00 | ||
| 7 | Helga Una Björnsdóttir | Penni frá Eystra-Fróðholti | 7,92 | ||
| 8 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | 7,83 | ||
| 9 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 7,79 | ||
| 10 | Erling Ó. Sigurðsson | Hnikar frá Ytra-Dalsgerði | 7,71 | ||
Gæðingaskeið – Ungmennaflokkur
| # | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Snilld frá Laugarnesi | 7,25 |
| 2 | Guðmar Freyr Magnússon | Brimar frá Varmadal | 7,00 |
| 3 | Arnar Máni Sigurjónsson | Púki frá Lækjarbotnum | 6,75 |
| 4 | Kristján Árni Birgisson | Máney frá Kanastöðum | 6,67 |
| 5 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Karitas frá Langholti | 6,67 |
| 6 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Náttúra frá Flugumýri | 6,42 |
| 7 | Embla Þórey Elvarsdóttir | Tinni frá Laxdalshofi | 6,29 |
| 8 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 6,29 |
| 9 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Smyrill frá V-Stokkseyrarseli | 6,25 |
| 10 | Egill Már Þórsson | Fjöður frá Miðhúsum | 6,13 |
Gæðingaskeið – Unglingaflokkur
| # | Knapi | Hross | Einkunn | Mót |
| 1 | Benedikt Ólafsson | Leira-Björk frá Naustum III | 7,58 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 2 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 7,54 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 3 | Kristján Árni Birgisson | Máney frá Kanastöðum | 7,13 | Íslandsmót barna og unglinga |
| 4 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Björk frá Barkarstöðum | 6,83 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 5 | Matthías Sigurðsson | Kötlukráka frá Dallandi | 6,17 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 6 | Jón Ársæll Bergmann | Vonar frá Eystra-Fróðholti | 5,96 | Íslandsmót barna og unglinga |
| 7 | Sigurbjörg Helgadóttir | Hörpurós frá Helgatúni | 4,63 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 8 | Ragnar Snær Viðarsson | Ísak frá Búðardal | 4,54 | Reykjavíkurmeistaramót |
| 9 | Júlía Kristín Pálsdóttir | Flugar frá Flugumýri | 4,38 | Íslandsmót barna og unglinga |
| 10 | Védís Huld Sigurðardóttir | I Elva frá Miðsitju | 3,50 | Íslandsmót barna og unglinga |
Birt með fyrirvara um að öll mót ársins hafi borist.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH