Þýska meistaramótið – Siggi og Beggi fljótastir í skeiðinu
Sigurður Óli og Snælda frá Laugabóli náðu besta tímanum í 150 metra skeiði í gær mynd: Neddenstierfoto/Isibless
Í gær var keppt í slaktaumatölti og fyrstu tveimur sprettum í 150 metra og 250 metra skeiði á Þýska Meistaramótinu, seinni tveir sprettirnir fara fram í dag.
Að loknum þessum tveimur sprettum eru það Íslendingarnir Sigurður Óli Kristinsson og Beggi Eggertsson sem náðu bestu tímunum í sitthvorri vegalengdinni, það verður því spennandi að fylgjast með því seinni partinn hvort þeir nái að halda efsta sætinu.
Beggi og Besti frá Upphafi eiga besta tímann í 250 metra skeiði en tími þeirra er 22,44 sekúndur. Hér má sjá niðurstöður í 250 metra skeiði.
Sigurður Óli og Snælda frá Laugabóli eiga besta tímann í 150 metra skeiði en hann er 14,44 sekúndur. Hér má sjá niðurstöður í 150 metra skeiði.
Í slaktaumatölti er það fyrrum heimsmeistarinn í þeirri grein, Jolly Schrenk, sem er efst að lokinni forkeppni á hesti sínum Glæsi von Gut Wertheim en einkunn hennar er 8,53. Í öðru sæti er Daniel C. Schulz á Spuna vom Heesberg með einkunnina 8,00 og í því þriðja Lucie Leuze á Valsa vom Hrafnsholt með 7,73 í einkunn. Allar niðurstöður úr slaktaumatölti má nálgast hér.
Í dag fer fram forkeppni í fjórgangi og svo seinni partinn er skeiðið og þá fáum við að vita hvort Íslendingarnir hafa sigur.
Hægt er að kaupa sér aðgang að beinni útsendingu með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH