Spenna og dramatík í fimmgangskeppni Meistaradeildar – myndir

  • 10. mars 2011
  • Fréttir
Spenna og dramatík í fimmgangskeppni Meistaradeildar - myndir

Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sigruðu fimmgangskeppni Meistaradeildar sem fram fór í kvöld í Ölfushöll.

Sigurður Sigurðarson á Sval frá Blönduhlíð og Sigurður Vignir Matthíasson á Mátt frá Leirubakka urðu jafnir í 2.-3. sæti.

Vegna tæknimistaka urðu útreikningar A-úrslitanna rangir og því þurfti að leiðrétta niðurstöðurnar eftir keppni.

Keppnin var bæði skemmtileg og spennandi. Hinrik og Glymur leiddu örugglega eftir forkeppni með einkunnina 7,07, Viðar Ingólfsson og Már frá Feti komu næstir með 6,73 í einkunn. Sigurvegarar fimmgangsins í fyrra, Sigurbjörn Bárðason og Stakkur frá Halldórsstöðum þurftu hins vegar að hljóta náð fyrir augum dómara í B-úrslitum til að eiga von um að verja titil sinn. Þeir urðu efstir í B-úrslitum og jafnir Þórdísi Erlu Gunnarsdótttur á Hreggviði frá Auðsholtshjáleigu, en bæði hlutu þau 6,73 í einkunn.

Í A-úrslitum fóru allir keppendur mikinn og sýndu sínar bestu hliðar, eins og má sjá á meðfylgjandi myndum.

Endanlegar niðurstöður úr A-úrslitum verða kunngjörðar um leið og þær berast.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link