Á rauðum lista í Þýskalandi – Hefur áhrif á ferðir reiðkennara

  • 2. október 2020
  • Fréttir

Íslenskir reiðkennarar eru vinsælir utan landssteinanna. Hér er Jóhann R. Skúlason umkringdur þýskum knöpum á HM í Berlín 2019. Ljósmynd: Sofia Lahtinen Carlsson/Eiðfaxi

Þjóðverjar hafa bætt Íslandi á rauðan lista yfir þau lönd sem teljast áhættusvæði með tilliti til Kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í frétt er birtist á vefsíðu RÚV í gær.

Með þessum aðgerðum þýskra yfirvalda er það ljóst að þeir reiðkennarar sem ferðast frá Íslandi til Þýskalands þurfa nú að fara í 14 daga sóttkví við komuna til Þýskaland. Íslenskir reiðkennarar eru vinsælir víða um evrópu og margir þeirra fara í nokkrar kennsluferðir á haustin. Það má því búast við því að með þessum aðgerðum þurfi margir reiðkennarar að fresta ferðum sínum til Þýskalands.

Innan sambandsríkja Þýskalands gilda þó mismunandi reglur um hvaða úrræði og skilyrði eru fyrir þá sem koma frá áhættusvæðum.

Listinn gildir hins vegar fyrir Þýskaland í heild sinni. Hér má sjá lista yfir þau lönd sem teljast til áhættu svæða í Þýskalandi en miðað er við að þau lönd þar sem 50 smit greinast á hverja 100.000 íbúa seinustu sjö daga séu skilgreind sem áhættusvæði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link