Hömlur settar á íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu
Samkvæmt fréttabréfi UMFÍ hafa verið settar hömlur á íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu frá 7.-19. október. Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.
Hestamannafélagið Fákur hefur nú þegar brugðist við þessum hertu aðgerðum og á síðu félagsins birtist eftirfarandi tilkynning í gær.
,,Í kennslu og við æfingar í okkar hestaíþróttastarfi er ekki krafist snertingar og mjög auðvelt er að halda nálægðartakmörkunum við 2 metra.
Í því ljósi er reiðhöllin opin og námskeið sem eru á umræddu tímabili munu halda sér. Þá er grímuskylda á öllum einstaklingum sem sækja námskeið, fyrir kennara og knapa.
Þá skal að hámarki 10 manns vera í reiðhöllini á hverjum tíma.
Bókleg knapamerki sem kennd eru í félagsheimili Fáks falla niður á umræddu tímabili, 7.-19. október.“
Hertar aðgerðir fela m.a. í sér:
-
- Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
-
- Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Fjöldi áhorfenda miðaðist áður við 100 í hverju rými. Áhorfendur skulu jafnframt bera grímu og sitja í merktum sætum.
-
- Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
Aðrar reglur ná þó til barna fædd 2005 og síðar og eru þær m.a.
-
- Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er heimil.
-
- Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
-
- Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH