Garðar Gíslason tilnefndur sem kynbótaknapi ársins í Svíþjóð

  • 8. október 2020
  • Fréttir

Á myndinni situr Garðar gelding sem heitir Ketill från Knutshyttan. Ljósmyndari er Mirjam Horn

Svíar hafa nú tilnefnt tvö knapa til viðbótar til kynbótaknapa ársins en það eru þeir Fredrik Rydström og íslendingurinn Garðar Gíslason.

Garðar sýndi alls fimm hross í sex sýningum. Meðalaldur þeirra var 6,6 ár. Meðaltal þeirra fyrir sköpulag var 8,23, meðaltal hæfileika 7,86 og meðaltal aðaleinkunnar 7,99.

Fredrik sýndi 8 hross í ár í 9 sýningum. Meðalaldur þeirra var 7,3 ár. Meðaltal þeirra fyrir sköpulag var 8,15, meðaltal fyrir hæfileika 7,54 og aðaleinkunn 7,76.

Áður hafði farið fram kynning á þeim Eyjólfi Þorsteinssyni og Erlingi Erlingssyni sem einnig eru tilnefndir.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link