Undirbúningur er hafinn fyrir Meistaradeild KS 2021!
Sigurlið Þúfna 2020
Eitt sæti er laust deildinni. Þau lið sem eiga þátttökurétt í deildinni þurfa að staðfesta fyrir 31.október hvort þau muni halda áfram.
Þau lið sem eiga þátttökurétt eru:
Þúfur
Hrímnir
Syðra-Skörðugil/ Weierholz
Regulator Complete / Skáney
Equinics
Íbishóll
Leiknisliðið
Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 15.nóvember á netfangið [email protected]
Umsókninni þurfa að fylgja nöfn liðsmanna og tilnefna einn liðsstjóra.
Það lið sem féll úr deildinni 2020 getur sótt um aftur og fer í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.
Liðin verða áfram skipuð 5 liðsmönnum. Í hverri keppnisgrein keppa þrír liðsmenn. Heimilt er að skipa þjálfara en greitt er þá sérstaklega fyrir hann.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH