Tekið til kostanna
Kolskeggur frá Kjarnholtum kemur fram á sýningunni.
Sýningin Tekið til kostanna verður haldinn í Svaðastaðahöll á Sauðárkróki laugardaginn 25 apríl.
Reiðkennaraefni Háskólans á Hólum bjóða upp á kennslusýningu kl. 13. Grunntónninn í sýningunni verður íslensk reiðhefð í fortíð og nútíð. Mun þá einnig reyna á leikræna tilburði reiðkennaraefnanna.
Klukkan 20 fer svo fram kvöldsýning. „Stóðhestar, hryssur, ræktunarbú, munsturreið, krakkar og unglingar, fimleikar, flugskeið o.fl. Sýningargestir mega eiga von á fjölbreyttri og skemmtilegri sýningu þar sem slegið er á létta strengi en fagmennska og gæðingakostir líka í hávegum hafðir. Vegleg verðlaun í skeiðkeppni, fyrir besta atriðið og fyrir flottasta parið.“
Aðgangseyrir kr. 2000, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH