Mídas frá Kaldbak hlýtur afkvæmaverðlaun
Mídas frá Kaldbak knapi: Steingrímur Sigurðsson
Stóðhesturinn Mídas frá Kaldbak hlýtur nú í haust 1.verðlaun fyrir afkvæmi. Verðlaunin hlýtur hann út á kynbótamat fyrir aðaleinkunn án skeiðis en þar er hann með 121 stig. Mídas er undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Væntingu frá Kaldbak, ræktandi hans er Viðar Steinarsson en eigandi er nú Mariell Johansson.
Mídas á 28 afkvæmi með fullnaðardóm en hæst dæmda afkvæmi hans er Vákur frá Vatnsenda sem hlaut nú í sumar 8,26 fyrir sköpulag, 8,42 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,36 sýndur af Ragnhildi Haraldsdóttur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH