Stóðhestabókin heillar alla jafnt unga sem aldna
Íris Lilja alsæl í lopapeysunni með Stóðhestabókina
Áhuga á hestum fá margir þeir sem hestamennskuna stunda í vöggugjöf. Íris Lilja Ólafsdóttir er þar engin undantekning enda á hún ekki langt að sækja áhugann því foreldrar hennar eru þau Ólafur Ásgeirsson og Liza Esmeralda Karlsson en þau reka tamninga- og þjálfunarstöð að Unnarholti í Svíþjóð. Óli Ásgeirs, eins og hann er jafnan kallaður, er m.a. útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Myndin var tekin við það tilefni að á leikskólanum hennar Írisar Lilju var haldið upp á dag Sameinuðu þjóðanna og voru börnin beðin um að taka með sér eitthvað frá því landi sem þau eiga rætur að rekja til. Íris fór að sjálfsögðu í lopapeysu og tók með sér Stóðhestabók Eiðfaxa til þess að sýna vinum sínum á leikskólanum íslenska hestinn. Samkvæmt foreldrum hennar kenndi hún mörgum börnum að segja „hobb hobb“ við hestana í bókinni.
Skemmtileg mynd sem sýnir vel að snemma beygist krókurinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH