Félagsmál eru ekki pólitík

  • 23. október 2020
  • Fréttir
Aðsend grein frá Guðna Halldórssyni

Frá því ég ákvað að gefa kost á mér til starfa sem formaður LH hafa margir haft samband við mig og varað mig við meintri hörku í svokallaðri „hestapólitík“ sem mun, eftir því sem mér er sagt, geta verið ansi hatrömm. Mitt svar við því hefur ávallt verið að ég er ekki í neinni pólitík og hef aldrei verið. Ég er eingöngu að bjóða fram krafta mína til að gegna sjálfboðastarfi fyrir hestamenn, með það fyrir augum að efla enn frekar okkar öflugu félagssamtök. Að mínu mati eru menn á villigötum ef þeir líta félagsmálastarf, sem einhvers konar pólitík. Við erum í félagsmálum sem eiga að vera jákvæð, skemmtileg og uppbyggileg, en ekki í pólitík.

Af samtölum mínum við formenn og forsvarsmenn aðildarfélaga víða um land fæ ég ekki betur heyrt en að félögunum þyki vanta aðeins upp á þennan félagsmálaanda innan LH. Þau hafi lítið af LH að segja og kalla eftir mun meiri samskiptum og samráði við landssamtökin, stjórn og skrifstofu. Ganga sumir svo langt að tala um að það eina sem félögin heyri frá LH sé innheimta félagsgjalda. Ekki skal ég segja hverju þetta sætir eða hvort ofsagt sé, en þessu verður að breyta. Efla þarf samtal og samstarf á milli aðila og virkja þann gríðarlega mannafla sem er úti í hestamannafélögunum.

Hestamennskan er sport fyrir alla, á hvaða aldri eða kyni sem við erum og hvar sem við eru búsett. Við þurfum að vernda þetta fjöregg okkar og standa saman um enn frekari kynningu og útbreiðslu hestamennskunnar m.a. í gegn um skólakerfið og eftir öðrum leiðum sem ég hef drepið á í fyrri greinum mínum.

Sem formaður mun ég gera það sem í mínu valdi stendur til að sameina hestamenn og stuðla að því að hestamenn um allt land starfi saman. Sameiginlegir hagsmunir okkar er það sem skiptir öllu máli.  Ef við hestamenn getum ekki unnið saman sem heild, hvernig eigum við að fá þjóðina og ráðamenn þjóðarinnar til þess að hlusta á okkur.  Ef hestamenn eru sínir eigin óvinir, er baráttan töpuð fyrirfram.

Skrauthólum 23. október 2020

Guðni Halldórsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link