Firmakeppni Freyfaxa 1. maí
Firmakeppni hestamannfélagsins Freyfaxa fer fram sunnudaginn 1. maí á hringvellinum á Stekkhólma.
„Vonumst við til að sem flestir komi og taki þátt í þessum degi með okkur. Það verður keppt í eftirfarandi flokkum: barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk, kvennaflokk, áhugamannaflokk, höfðingjaflokk og opnum flokk. Tekið verður við skráningum á staðnum skráning er á milli kl. 12 og 12.40 keppni hefst stundvíslega kl. 13. Þegar keppni er lokið í öllum flokkum verður kaffihlaðborð að hætti Freyfaxa kvenna,“ segir á heimasíðu Freyfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH