Toppur að mæta í Eyjafjörðinn
Nú fer að styttast í að Toppur frá Auðsholtshjáleigu fari í hólf í Eyjafirði.
Enn eru laus pláss hjá þessum glæsilega hesti og eru hryssueigendur hvattir til að nýta sér þetta tækifæri. Toppur hefur hlotið 8,49 fyrir sköpulag, 8,50 fyrir hæfileika og 8,49 í aðaleinkunn. Þar af hefur hann hlotið 9 fyrir höfuð, hás/herða/bóga, samræmi, tölt, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt tölt.
Verð með öllu er 149.000- kr.
Nánari upplýsingar veitir Einar í Brúnum í síma 863 1470.
Upplýsingar um fleiri hesta á svæði Hrossaræktarsamtaka Eyfiðringa og Þingeyinga eru birtar á vef samtakanna hryssa.is og aðstandendur hestanna eru hvattir til að senda okkur upplýsingar svo við getum sett þar fleiri upplýsingar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH