Hrímnisvetrarmót Harðar
Hrímnisvetrarmót Harðar verður haldið á Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl nk. á útivelli hestamannafélagsins að Varmárbökkum. Leikar hefjast kl. 13.
Keppt verður í tölti og er boðið upp á flokkanna; pollar teymdir, pollar ríða einir, börn, unglingar, ungmenni, konur 2, konur 1, karlar 2, karlar 1 og atvinnumannaflokk.
Skráning verður í „bláa gámnum“ samdægurs milli kl. 11.30 – 12.30 og eru skráningargjöld 1.500 kr. fyrir fullorðna og ungmenni, 1.000 kr. fyrir unglinga en frítt er fyrir börn og polla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH