Skemmtilegur félagsreiðtúr

  • 9. maí 2011
  • Fréttir
Skemmtilegur félagsreiðtúr

Á meðan margir hestamenn einbeittu sér að Reykjavíkurmóti í Víðidal, skellti hestamannafélagið Sóti sér í félagsreið með nýju sniði.  Æsku-ferða og skemmtinefnd Sóta tók höndum saman og skipulögðu hópreið með smalaþema.

„Hópnum var skipt í 2 hópa, þeir sem vildu ríða hratt og hin sem vildu fara hægar.  Hóparnir hittust svo út á Eyri þar sem búið var að koma upp hólfi fyrir hestana á meðan þátttakendur gæddu sér á smala-nesti (flatkökur með hangikjöti, harðfiskur o.þ.h.) og fóru í nokkra leiki.

Síðan voru bakkarnir riðnir til baka alveg út að Hliði ená þeirri leið var prófaður (vonandi tilvonandi) reiðstígur sem liggur meðfram sjávarbakkanum frá Gestshúsum að golfvellinum. 

Eftir gott stopp út í Hliði fóru flestir úr hópnum yfir Ósinn þar sem Halli fararstjóri og Ljúfur fóru á sund! Síðan var riðið aftur heim í hesthús eftir 3ja tima reiðtúr í hreint frábæru veðri.

Hátt í 30 manns tóku þátt og gaman var að sjá alla nýju Sóta félagana frá Breiðabólsstað slást í hópinn,“ segir á heimasíðu Sóta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link