Eiðfaxi Haust – Á sagnaslóð við smalamennsku

  • 5. nóvember 2020
  • Fréttir

Fjallhestar á beit við Hrútfell ljósmynd: Gísli Guðjónsson

Nýjasta tímarit Eiðfaxa er nú farið í prentvélarnar, stútfullt af skemmtilegu efni og fróðleik.

Í tímaritinu er að finna ferðasögu ritstjóra Eiðfaxa í fjallferð á Biskupstungnaafrétt. Við skulum lesa inngang greinarinnar og fá þannig forsmekkinn af því sem koma skal.

Landsvæðið er nefnist Kjölur er víðáttu mikið svæði á milli Langjökuls í vestri og Hofsjökuls í austri, Hvítá í suðri að Blöndu og Seyðisá í norðri. Þar eru m.a. afréttarlönd Biskupstungnahrepps hins forna. Hvíta og Hvítárvatn skipta svo afréttinum í tvennt því yfirleitt er talað um framafrétt þar fyrir sunnan.
Afréttur Tungnamanna liggur að afréttarlöndum Austur-Húnavatnssýslu í norðri og Hrunamannahrepps í austri. Landsvæði þetta allt er samofið sögu þjóðarinnar því Kjalvegur var þjóðleið á milli landshluta og í fornsögunum eru til frásagnir af þessari leið og ýmsum þjóðsögum og öðrum sögnum sem gerðust á þessum slóðum. Það að vera við smalamennskur á þessu svæði setur því ímyndunaraflið á fullt og auðvelt er að láta söguna verða ljóslifandi allt í kringum sig og ímynda sér bæði bjarta daga sem og hörmungar þeirra sem þar lentu í vondum veðrum og hrakningum. Inn á miðhálendi Íslands á íslenska sauðkindin sumarhaga sína og unir sér þar vel frjáls í fjallasölum. Hálendið yrði aumt og líflaust að sjá ef hennar nyti ekki við.
Í þessari grein má lesa ferðasögu greinarhöfundar þar sem hann var ásamt 25 öðrum fjallmönnum úr Biskupstungum á ferð á hestum við smalamennskur á sauðfé. 

Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link