Hesta­menn ósátt­ir með lóðarleigu­samn­inga

  • 3. nóvember 2020
  • Fréttir

Þetta kemur fram á vefsíðu mbl.is

Stjórn­ir fé­lags hest­hús­eig­enda í Víðidal og hest­manna­fé­lags­ins Fáks mót­mæla samþykkt borg­ar­ráðs þar sem beiðni hest­hús­eig­enda í Víðidal, um 50 ára lóðarleigu­samn­inga, var hafnað.

Kveða samn­ing­arn­ir á um að borg­ar­sjóður greiði leigu­taka sann­v­irði hús­anna að leigu­tíma lokn­um en í stað þess samþykkti borg­ar­ráð með fjór­um at­kvæðum gegn þrem­ur að lóðarleigu­samn­ing­ar í Víðidal skuli áfram gerðir til 25 ára og hús­eig­andi skuli á sinn kostnað fjar­lægja hest­húsið og skila þannig lóðinni til borg­ar­inn­ar að leigu­tíma lokn­um.

Seg­ir í til­kynn­ingu frá fé­lag­inu að vegna þessa þurfi hesta­menn í Víðidal því „áfram að búa við al­ger­lega úr­elta lóðarleigu­samn­inga sem hamla viðhaldi, end­ur­nýj­un og fjár­mögn­un hest­hús­anna“.

Lýk­ur henni á þess­um orðum:

„Þess­ir úr­eltu lóðarleigu­samn­ing­ar standa enn frem­ur í vegi fyr­ir end­ur­nýj­un í hesta­mennsk­unni, að ungt fólk vilji leggja í þá fjár­fest­ingu sem bygg­ing hest­húss er. Það er ótrú­legt að árið 2020 sé hest­hús­eig­end­um boðið upp á það að fjar­lægja hest­hús á sinn kostnað að lokn­um 25 ára leigu­tíma.“

Ágrein­ing­ur hef­ur verið á milli hest­hús­eig­enda í Víðidal og borg­ar­stjórn­ar um mál þessi í all­mörg ár en önn­ur hús á Fáks­svæðinu, þ.e. Faxa­ból, Reiðhöll­in, Dýra­spítal­inn og Al­mannadal­ur ásamt öðrum hest­hús­um á höfuðborg­ar­svæðinu hafa samn­inga með ákvæðum þeim sem hest­hús­eig­endund­ur í Víðidal vilja nú inn­leiða í lóðarleigu­samn­inga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link