Tímavélin – Efnilegur hestamaður úr Hólminum
Eysteinn Leifsson 12 ára og heiðursverðlaunahryssan Þota 3201
Tímavélin stoppar að þessu sinni árið 1980. Í 12. tbl Eiðfaxa það ár var viðtal við ungan hestamann úr Hólminum. Hér kemur það í heild sinni:
Eysteinn Leifsson í Stykkishólmi er 12 ára gamall, og einn af fjölmörgum jafnöldrum sínum mjög áhugasamur hestamaður. Hann er sonur hjónanna Maríu Gísladóttur og Leifs Kr. Jóhannessonar ráðunauts. Þegar hryssa föður hans Þota fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á fjórðungsmótinu á Kaldármelum sl. sumar tók Eysteinn við verðlaunabikarnum. Það er mjög sjaldgæft að börn taki á móti verðlaunum fyrir kynbótahross.
– Þótti þér ekki gaman að þessu Eysteinn?
Jú þetta var bæði gaman og hátíðlega stund.
– Finnst þér að foreldrar eigi að láta börn sín taka á móti verðlaunum á slíkum stundum?
Já, mér finnst það.
– Stunda mörg börn og unglingar hestamennsku á Snæfellsnesi?
Já, það eru nokkuð margir og hefur farið fjölgandi. Sumir fara dálítið í útreiðar á veturna og hjálpa einnig til við smalamennsku bæði haust og vor.
– Er nokkurt sameiginlegt hesthús þar sem krakkar geta haft hesta sína eins og t.d. í Kópavoginum?
Nei það hafa flestir hestana í hesthúsum foreldra sinna, en nokkrum hefur þó tekist að eignast bás í hesthúsi.
– Hafa verið haldin námskeið fyrir ykkur?
Já það var í vor fyrir fjórðungsmótið. Bernt Sigurðsson var að kenna okkur. Ég vona að framhald verði á því
– Átt þú hest?
Já, ég á þrjá. Eina hryssu sem var með folaldi í sumar, hún er dálítið tamin. Svo á ég ljósan 2 v. fola Pabbi á mörg hross. Þota er elst þeirra, 20 vetra, og hún hefur átt 14 folöld svo að flest hrossin eru skyld henni.
– Þakka þér fyrir spjallið Eysteinn og skilaðu kveðju til krakkanna í Hólminum.
Þess má til gamans geta að Eysteinn Leifsson á afmæli í dag, 7. nóvember. Til hamingju með daginn Eysteinn!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH