Viðhorfsrannsókn á breytingum á dómskerfi kynbótahrossa

  • 8. nóvember 2020
  • Fréttir

Frá landssýningu kynbótahrossa árið 2020

Nýtt dómskerfi kynbótahrossa tók gildi á þessu ári eins og hestamenn flestir vita. Sitt sýnist hverjum um þær breytingar og ljóst að margir hafa á þeim skoðanir. Freyja Þorvaldsdóttir er nú að vinna að lokaverkefni frá Landbúnaðarháskóla Íslands er tengist þessum breytingum. Við heyrðum í Freyju og fengum hana til þess að segja okkur meira frá þessu spennandi verkefni.

Útskýrðu út á hvað lokaverkefni þitt við Lbhí gengur? ,,Lokaverkefni mitt er viðhorfsrannsókn á meðal kynbótaknapa til kynbótakerfisins almennt og þeirra breytinga sem gerðar voru núna síðast. Þeir sem sýndu kynbótahross á árinu 2020 hafa fengið sendan spurningalista þar sem spurt er um þeirra viðhorf og skoðanir á ýmsu sem tengist kynbótadómum og kynbótakefinu. Viðfangsefnið er auðvitað mjög stórt og vítt og við gerð spurningalistans var mjög auðvelt að fara um víðan völl. Ég ákvað að beina sjónum mínum mínum að því hversu mikilvægar fólki þætti breytingarnar á útfærslu í reiðdómi, traust til kerfisins almennt, samræmi á milli dómnefnda, hvaða eiginleikar dómarar ættu erfiðast með meta og ýmislegt fleira spennandi. Það var svo sannarlega af nógu að taka við gerð spurninganna.“

En af hverju ákvaðs Freyja að fara að stað með þetta verkefni? ,,Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á kynbótakerfinu og því leiðbeiningarstarfi sem í því felst.  Eins og flestir  hestamenn hef ég tekið þátt í líflegum umræðum á kaffistofunni um kosti og galla þessa kerfis. Það kom því aldrei neitt annað til greina þegar ég byrjaði að móta lokaverkefnið mitt en að gera einhverskonar könnun á viðhorfi til kerfisins. Það vildi síðan bara svo heppilega til að þessar breytingar tóku einmitt gildi í ár og þess vegna var rakið að spyrja út í þær.“

Rannsóknin byggir fyrst og fremst á gagnasöfnun og þar treystir Freyja á þátttöku hestamanna. ,,Aukið svarhlutfall þýðir áhugaverðari niðurstöður. Ég vil hvetja þá sem lentu í úrtakinu til að gefa sér tíma til að svara. Ætlunin var að senda á alla sem sýndu kynbótahross á árinu og að endingu ákvað ég að senda linkinn í facebook skilaboðum á Instagram og með sms í stað þess að senda hann í tölvpósti. Ég vil því biðla til fólks að kanna hvort að þessi skilaboð leynist í innhólfinu hjá því. Það ætti að taka um það bil 5 mínútur að svara svo vonandi ættu flestir að geta fundið lausa stund í amstri dagsins til að gera það. Kynbótakerfið er líka eitthvað sem ég held að nánast allir hafi einhverja skoðun á svo það er um að gera að grípa tækifærið og koma þessum skoðunum á framfæri.“

Eitthvað fleira sem þú vilt koma á framfæri?

Ég vona að í niðurstöðunum komi fram eitthvað áhugavert sem gæti verið innlegg í umræðuna um kynbótakerfið og jafnvel væri hægt að hafa til hliðsjónar við næstu breytingar. Núna er tækifæri til að láta í sér heyra og viðra allar þær skoðanir sem fólk hefur á kynbótakerfinu.

Freyja Þorvaldsdóttir mynd: Aðsend

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link