,,Sýna frá undirbúningi sínum fyrir stórar sýningar“
Hér fyrir neðan má sjá myndband frá hópi reiðmanna í Lixhof í Suður-Þýskalandi sem sýnir frá undirbúningi þeirra og þjálfun fyrir stórar hestasýningar þar sem þau koma fram og kynna íslenska hestinn. Hópurinn hefur fengið góðar viðtökur hvar sem hann kemur og hefur vakið verðskuldaða athygli á stórum viðburðum líkt og Equitana og fleiri sýningum.
Íslenski hesturinn er einhver helsti sendiherra þjóðarinnar á erlendri grundu og það er gaman að sjá hvað hann gerir mikið fyrir fólk um allan heim, myndbandið er hér fyrir neðan og sjón er sögu ríkari.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH