Frestur til framboðs líkur á föstudag
Frá Landsþingi á Selfossi árið 2014 mynd: Eiðfaxi
62. landsþing Landssambands hestamannafélaga sem áður hafði verið boðað 16.-17. október var frestað til 27.-28. nóvember. Þá var frestur til formanns- og stjórnarframboðs sem áður var 2. október framlengt til 13. nóvember.
Eins og staðan er núna hafa tveir frambjóðendur boðið sig fram til formanns en það eru þeir Guðni Halldórsson og Ólafur Þórisson. Ekki hefur heyrst að fleiri ætli að bjóða sig fram til formanns þó svo að sögusagnir hafi verið uppi um fleiri framboð fyrr í haust.
Fjórir af þeim sem starfað hafa í stjórn LH síðastliðin tvö ár gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það eru:
Lárus Ástmar Hannesson núverandi formaður
Oddrún Ýr Sigurðarsdóttir núverandi ritari
Þórdís Arnardóttir núverandi varastjórnarmaður
Rósa Birna Þorvaldsdóttir núverandi varastjórnarmaður
Þeir sem gefa kost á sér til aðalstjórnar eru
Ágúst Hafsteinsson núverandi meðstjórnandi
Eggert Hjartarson núverandi meðstjórnandi
Siguroddur Pétursson núverandi varastjórnarmaður, gefur kost á sér í aðalstjórn
Sóley Margeirsdóttir núverandi varaformaður
Stefán Logi Haraldsson núverandi meðstjórnandi
Til aðal- og varastjórnar:
Ómar Ingi Ómarsson núverandi varastjórnarmaður, gefur kost á sér í aðalstjórn og til vara til varastjórnar
Framboðsfrestur rennur því út í lok vikunnar og spennandi verður að fylgjast með hvort fleiri framboð bætist í hópinn. Þá er einnig ennþá óráðið hvernig þingið fer fram en ljóst er að fjöldatakmarkanir setja strik í reikninginn og að þingið mun ekki fara fram með hefðbundnum hætti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH