Fimm daga Reykjavíkurmót í Fáki

  • 3. maí 2011
  • Fréttir
Margir spennandi hestar skráðir

Opið Reykjavíkurmót Fáks í hestaíþróttum er eitt það viðamesta frá upphafi og er eitt stærsta hestamót landsins. Mótið stendur í fimm daga og dagskráin er þéttskipuð. Að venju taka þátt í mótinu flestir sterkustu knapar og hestar landsins.

Þar á meðal er Jakob Sigurðsson, sem mætir nú með bræðurna Al og Asa frá Lundum II, en þeir voru í toppsætum á íþróttamóti suður með sjó fyrir skömmu. Alur er Íslandsmeistari í slaktaumatölti en var annar í fimmgangi á nefndu móti og Jakob teflir honum einnig fram í fimmgangi á Reykjavíkurmótinu, í Meistaraflokki! Asi var efstur í fjórgangi á umræddu móti og er skráður til leiks í þá grein nú.

Athygli vekur að Sigurbjörn Bárðarson er ekki skráður í fimmgang, sem hefur verið hans aðalgrein alla tíð. Er hann líklega að spara Stakk frá Halldórsstöðum fyrir átök sumarsins, en víst má telja að hann stefni á sigur í A flokki gæðinga á Landsmótinu á Vindheimamelum. Sigurbjörn er hins vegar skráður í tölt á Jarli frá Mið-Fossum, og í fjórgang á hinum glæsta Penna frá Glæsibæ.

Margir fleiri reyndir og spennandi hestar eru skráðir. Má þar nefna Hauk Baldvinsson á Fali frá Þingeyrum í fimmgang í Meistaraflokki, Sigurð V. Matthíasson á Mætti frá Leirubakka í fimmgang í Meistaraflokki og í 1. flokki á hinum glæsilega gæðingi Ómi frá Hemlu. Hinrik Bragason í fimmgang í 1. flokki á Sturlu frá Hafsteinsstöðum, sem var í úrslitum í A flokki á LM2008.

Sigurður Sigurðarson á Loka frá Selfossi og Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi eru skráðir í fjórgang í Meistaraflokki, einnig Anna Valdimarsdóttir á Bárði frá Skíðbakka II og Hulda Sigurðardóttir á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu.

Í tölti er flestar skráningar að venju. Það stefnir í mikla baráttu í tölti Meistara. Nokkur ný og yngri nöfn hafa bæst í þann hóp síðustu misserin. Má þar nefna Erlu Guðnýju Gylfadóttur á Erpi frá Mið-Fossum, Bylgju Gauksdóttur á Grýtu frá Garðabæ, Berglindi Ragnardóttur á Frakki frá Laugavöllum, Huldu Finnsdóttur á Jódísi frá Ferjubakka 3, sem sigraði óvænt Ís-landsmót á Svínavatni í vetur, og Camillu Petru Sigurðardóttur á Dreyra frá Hjaltastöðum, svo einhverjir knapar séu nefndir.

Enn meiri gróska er í nýjum knöpum og hestum í 1. flokki, en þar spreyta sig keppendur á hestum sem beðið hefur verið eftir með nokkurri eftirvæntingu. Má þar nefa Artemisu Bertus á Óskari frá Blesastöðum 1a, Ólaf Ásgeirsson á Sædyni frá Múla, Hinrik Bragason á Njáli frá Friðheimum. Allt 1. verðlauna stóðhestar.

Að lokum er rétt að minn á að keppt er í öllum aldursflokkum, þar á meðal barna- unglinga og ungmennflokki. Ekkert þak er heldur á fullorðinsflokkunum, en að þessu sinni verða Sigurbirni Bárðarsyni til liðsinnis og skemmtunar nokkrar kempur á hans aldri: Sigurður Sæmundsson, Trausti Þór Guðumundsson og Gunnar Arnarson. Ekki spurning að það verður frábært Reykjavíkurmót í Víðidal um helgina.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link