Óútskýrður munur milli landa
Á aðalfundi Félags Hrossabænda var samþykkt tillagaþar sem skorað er á stjórn félagsins að beita sér fyrir því að samræmi gæti í kynbótadómum hér álandi og erlendis.
Þar kemur fram að menn telji óútskýrðan mun vera á einkunnum hér heima og úti og vilja menn vinna gegn þessari þróun.
Þó er sagt í tillögunni að munur sem þessi sé einnig hér á landi og því vildu fundarmenn að stjórnin beitti sér fyrir samræmdara vinnulagi og að samþykktum fagráðs og hrossaræktarráðunauts sé alls staðar eins framfylgt.
Eins er lagt til í þessari tillögu að vinna áfram að því að alltaf sé einn íslenskur dómari í hverri dómnefnd sem dæmir utan Íslands.
Hér er tillagan:
Aðalfundur Félags hrossabænda beinir því til stjórnar að hún beiti sér fyrir því að
Fagráð standi vörð um að framkvæmd kynbótasýninga og að stöðlun
sýningaraðstæðna sé hin sama hérlendis og erlendis. Jafnframt geri Fagráð tillögur
sem miði að því ráða bót á meintu misræmi í dómum frá einni sýningu til annarrar
og stuðli að trúverðugri jafnstöðu allra dóma sem fara inn í Worldfeng.
Greinargerð: Það hefur talsvert borið á því að hross sem hlotið hafa þokkalegan
kynbótadóm hérlendis hafi snarhækkað á sýningum erlendis innan sama árs.
Dæmi um slíkan óútskýrðan mun er einnig að finna á milli sýninga hérlendis. Þetta
vekur upp þá kröfu að allir sýningarhaldarar sitji við sama borð og hlíti ákvörðun
hrossaræktarráðunautar eða Fagráðs um skipan dómnefnda. Gera á þá
lágmarkskröfu að minnsta kosti einn íslenskur dómari dæmi á öllum sýningum
erlendis. Verði misbrestur á þessu, fari dómarnir ekki inn í WorldFeng.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH