Mögnuð keppni
Mögnuð keppni í fimmgangi í kvöld í Suðurlandsdeildinni! Hestakosturinn var algjörlega magnaður og knaparnir til fyrirmyndar. Lið Töltrider stóð uppi sem stigahæsta lið kvöldsins en þeirra keppendur enduðu í 2. og 6. sæti í flokki atvinnumanna og 1. og 17. sæti í flokki áhugamanna. Glæsilegur árangur!
Sigurvegari atvinnumanna var Helga Una Björnsdóttir á Penna frá Eystra-Fróðholti og kepptu þau fyrir lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns.
Sigurvegari áhugamanna var Eygló Arna Guðnadóttir á Gerplu frá Þúfu í Landeyjum og kepptu þau fyrir lið Töltrider.
Staðan í liðakeppninni eftir aðra keppni er hnífjöfn og eiga ennþá nánast öll liðin möguleika á að sigra eða í það minnsta blanda sér í topp baráttuna! Það verður virkilega spennandi að fylgjast með því hvernig keppnin þróast áfram.
Næsta grein er parafimi og fer hún fram 19. febrúar.
Staðan í liðakeppninni er:
1 Toltrider 104,5
2 Heimahagi 104
3 Húsasmiðjan 100,5
4 Vöðlar/Snilldarverk 96,5
5 Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 95,5
6 Fet/Kvistir 92
7 Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 90,5
8 Krappi 89
9 Equsana 88
10 Ásmúli 86,5
11 Austurás/Sólvangur 65
Niðurstöður úrslita má sjá hér.
A úrslit – áhugamanna
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Eygló Arna Guðnadóttir Gerpla frá Þúfu í Landeyjum Töltrider 6,21
2 Sigurbjörn Viktorsson Sóldögg frá Brúnum Heimahagi 6,19
3 Vilborg Smáradóttir Þoka frá Þjóðólfshaga 1 Equsana 6,10
4 Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg Tign frá Vöðlum Vöðlar/Snilldarverk 6,00
5 Svanhildur Hall Þeyr frá Holtsmúla 1 Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 5,88
6 Karen Konráðsdóttir Lind frá Hárlaugsstöðum 2 Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 5,79
A úrslit – atvinnumanna
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Helga Una Björnsdóttir Penni frá Eystra-Fróðholti Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 6,83
2 Elvar Þormarsson Klassík frá Skíðbakka I Toltrider 6,79
3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Prins frá Hellu Heimahagi 6,60
4 Eva Dyröy Sesar frá Þúfum Vöðlar/Snilldarverk 6,55
5 Vignir Siggeirsson Ásdís frá Hemlu II Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 6,52
6 Hjörvar Ágústsson Ás frá Kirkjubæ Töltrider 6,45
7 Ásmundur Ernir Snorrason Þrá frá Strandarhöfði Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 6,31
Heildarniðurstöður er hægt að nálgast í Kappa appinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH