Krákur til Danmerkur

  • 7. desember 2020
  • Fréttir

Krákur og Þórður Þorgeirsson LM2012 Ljósmynd: Jens Einarsson

Hinn frægi stóðhestur Krákur frá Blesastöðum 1A er á meðal þeirra hrossa sem fara af landi brott í kvöld þann 7.desember. En samkvæmt heimildum Eiðfaxa eru fleiri hátt dæmdir stóðhestar að fara af landi bross eins og t.d. Máfur frá Kjarri sem fer til Hollands. Þessir tveir stóðhestar halda því í fótspor fleiri hátt dæmdra hesta sem fluttir hafa verið út í ár.

Krákur er fæddur árið 2002 og sló í gegn á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2006 þegar Þórður Þorgeirsson sýndi hann í flokki fjögurra vetra stóðhesta þar sem hann varð annar í þeim flokki með 8,34 í aðaleinkunn, hlaut hann þá m.a. 9,5 fyrir tölt.

Hann á 678 fædd afkvæmi og eru 157 þeirra sýnd í kynbótadómi. Hæst dæmda afkvæmi hans er Arís frá Sauðárkróki sem er undan Hvíta-Sunnu frá Sauðárkróki og er í eigu Sauðárkróks-Hesta. Hlaut hún 8,52 í aðaleinkunn á Fjórðungsmóti Vesturlands í Borgarnesi árið 2017 en fyrir hæfileika hlaut hún 8,81, fyrir sköpulag 8,08 og í aðaleinkunn 8,52.

Krákur hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi á LM2012 í Víðidal og segir í afkvæmaorðum hans.

Krákur gefur hross um meðallag að stærð með svipgott höfuð en oft merarskál. Hálsinn er reistur og grannur við skásetta bóga. Baklínan er prýðileg en bakið ekki breitt og lendin er jöfn og öflug. Samræmið er mjög gott, afkvæmin eru léttbyggð, langvaxin, fótahá og sívöl. Fótagerð er undir meðallagi, fætur oft afturstæðir, sinar grannar og sinaskil lítil og útskeifni er algeng á framfótum. Hófar eru efnisþykkir og djúpir og prúðleiki í rúmu meðallagi. Krákur gefur úrvals tölt, mjúkt, rúmt, taktgott, lyftingar- og skrefmikið og takgott, skref- og lyftingarmikið brokk. Afkvæmin stökkva mjúkt og hátt. Klárgangur er ríkjandi meðal afkvæma Kráks en góðir vekringar finnast í hópnum. Afkvæmi Kráks eru mjög vel viljug og vakandi og bera sig vel með háum fótaburði. Krákur gefur fótahá og léttbyggð hross með úrvals tölt og mikinn fótaburð. Krákur hlýtur fyrstuverðlaun fyrir afkvæmi og þriðja sætið.

Krákur ásamt afkvæmum á LM2012 í Víðidal ljósmynd: Jens Einarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link