Stórsýning á morgun
Stórsýningin Fákar og fjör fer fram í Top Reiter höllinni á Akureyri á morgun kl. 18. Þar munu koma fram glæsilegir gæðingar og þaulreyndir knapar.
„Sylvía Sigurbjörnsdóttir ætlar að mæta á Furu frá Enni á stórsýninguna Fákar og fjör sem fram fer í Top Reiter höllinni á Akureyri á morgun kl. 18. Tryggvi Björnsson mætir með stóðhestinn Stimpil frá Vatni og eyfirskar gæsir munu spila þarna hlutverk. Heyrst hefur að Matthías Eiðsson sé aftur kominn í hnakkinn og muni líklega mæta tvíefldur til leiks og að Bjarni Jónasar sé búinn að komast að hinu sanna með hana Kommu sína – hvað gæti það verið?“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Létti.
Forsala miða í Fákasporti og Líflandi á Akureyri.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH