Föstudagspistill Hinna Sig
Það virðist ætla að verða einhver bið á því að við komumst inn í reiðhallir landsins að þjálfa okkur og hestinn okkar því miður. Veiran ætlar víst að stoppa hjá okkur og taka einn kaffi enn áður en hún fer að koma sér í burtu. Ég verð að viðurkenna að það er sumt jákvætt sem hefur gerst með þjálfun á mínum hestum á þessum tíma sem við höfum ekki komist inn í höll.
Ég hef farið heilmikið út úr comfort zone með þjálfunina, haft hana hreinlega fjölbreyttari og ég finn að hestarnir eru almennt í góðu grunnjafnvægi hjá mér á gangtegundum, kannski betra en oft. En það er líka heilmargt sem hægt er að dunda sér við og sem gerir svkalega mikið gagn fyrir okkur og mig langar til þess að lýsa einni frábærri æfingu sem mér finnst að allir ættu að taka og nota. Það er gott að finna sér afmarkað svæði, 8×8 metrar er mjög passlegt og setja upp keilur í ferning.
Þessi æfing er kölluð A-B-C og kemur úr ranni Kyru Kirklund sem ég hef áður vitnað í hér í þessum pistlum mínum, og hún snýst um að styrkja og bæta svörun hestsins við grunnábendingum og bæta færni knapans að gefa ábendingar óháðar hverri annarri.
Hvatning-hömlun-beygjuábendingar
- Riðið fram að fyrstu keilu
- Stöðvun
- Stilla hnakka og sveigja háls (Innri taumur lyftist aðeins upp til þess að stilla og sveigja, ytri taumur skammtar sveigjuna)
- Vinstri/hægri áseta eftir hvaða átt sveigjan er, Snúa öxlum inn (ímyndaðu þér að þú sért með augu í öxlunum sem horfa þangað sem bógar hestsins eiga að fara) og ytri fótur færist aðeins aftur. Innri fótur er við gjörð.
- Ytri ábendingar (fótur og ytri taumur) koma að og færa framhluta hestsins inn gegnum hornið
- Stöðvun við næstu keilu og svo framvegis.
Þessi æfing er alveg frábær til þess að skýra út grunnábendingar eins og áður segir, og fá hestinn þjálan fyrir beygjuábendingum. Við færum stýrið inn í miðjan hestinn má segja og innri taumur gerir í raun ekki annað en að sýna hestinum leiðina sem við ætlum að fara og ytri ábendingar stýra stefnunni.
Þetta er fyrir mér algjör grunnforsenda í stjórnun á hraða og stefnu, að ná stjórn á fótum hestsins í stað þess að taka í innri tauminn eins og við erum stundum dálítið gjörn á að gera.
Að kenna hestinum A (af stað) B (stop) og C (beygja) rétt gefur okkur forsendur til þess að fara að vinna með til dæmis opinn sniðgang (shoulder in) og fleri æfingar sem skipta miklu máli.
Svo er auðvitað hægt að fara í allskonar afbrigði af þessari frábæru æfingu og gleyma sér alveg í henni þó maður sé bara að ríða í kringum 4 keilur.
Það er til dæmis að í stað þess að færa framhluta inn með innri taum og ytri fæti að snúa því við og færa afturhlutann út. Þá er knapinn að kenna hestinum að færa sig frá innri fæti, og að ytri taumur hamlar. Styrkir þar með svörun við hliðarhvetjandi ábendingum enn frekar og er liðkandi.
Það er hægt að fara að gera æfinguna fljótandi, þ.e án þess að stoppa í hornunum og fara svo að bæta inn gangskiptingum í rólegheitunum sem hjálpa hestinum heil ósköp með jafnvægið. Mjög gott er líka að kynna æfinguna fyrir hestinum við hendi, eins og flestar æfingar sem hesturinn lærir.
Endilega skoðið þessa frábæru æfingu, og vitið til, þið eigið eftir að finna alveg þrælskemmtilega hluti í þessu.
Myndin sem teiknuð er var tekin að láni af gúglinu og ég vona að ég lendi ekki í vandræðum með það, og hinar myndirnar sýnir Adda Snæbjörns félaga minn sýna vinstri ásetu býsna velÞar sem hann snýr öxlum eins og bógar hestsins, ytri taumur kemur að og skammtar sveigju, og svo þar sem innri hlið hestsins er sýnd, notar hann lyftitaum til þess að sýna hestinum leiðina (stilla og sveigja) með léttleika.
Svona ríðum við gegnum beygjur, og á sveigðu spori.
Ríðið vel
kveðja Hinni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH