,,Smíða það sem ég er beðinn um“
Steinn Másson á verkstæði sínu á Hellu
Helluístöð er lítið fyrirtæki sem sérhæfir sig í því að smíða úr ryðfríu stáli ýmsa vöru fyrir hestamenn og fleiri. Fyrirtækið tekur við sérpöntunum og framleiðir m.a. ístöð, hnakka-, hjálma-, saltsteina- og beislisstatíf. Upplýsingar um vöru og verðskrá er að finna á facebook síðu fyrirtækisins sem má skoða hér.
Það er Steinn Másson sem er eigandi og í raun eini starfsmaðurinn hjá fyrirtækinu Blaðamaður Eiðfaxa var á ferðinni á Hellu um daginn og tók stöðuna á Steini og hans framleiðslu. „Ég byrjaði aðeins að smíða árið 2001 en það má segja að þetta hafi orðið aðalatvinna árið 2006. Ég byrjaði á því að smíða eingöngu öryggisístöð og ístöð með skammstöfunum. Það er mjög misjafnt hvað ég hef mikið að gera, stundum eru rólegir tímar en svo ríkur þetta upp inn á milli. Vinsælasta varan mín eru sérmerktu ístöðin en ég smíða líka mikið af hnakkastatífum, hlífar fyrir vatnsskálar og í raun bara það sem fólk biður mig um.

Hér má ýmsa smíði eftir Stein Másson.
Inn á Facebook síðu fyrirtækisins má sjá margt af því sem Steinn hefur verið að smíða í gegnum tíðina og þar er að finna ýmsa lista smíð. „Stundum finnst mér að fólk mætti spá aðeins meira í því hvaðan varan kemur og skoða hvernig ástandið er á því sem það er að kaupa. Það að ístöð séu vel smíðuð er mikið öryggisatrið því ef ístað slitnar getur farið illa.“

Ístöðin sérmerktu eru sívinsæl
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH