Úrvalssýning eða kynbótasýning á landsmóti?
Sara Rut Heimisdóttir og Sara frá Stóra-Vatnsskarði á LM2016
Eftir vel heppnaða landssýningu kynbótahrossa í sumar veltir maður fyrir sér hvort þörf sé á endurdæmingu kynbótahrossa á landsmótum. Samkvæmt dagskrá síðustu landsmóta er dæming kynbótahrossa með yfirliti frá mánudegi til föstudags, í kringum 50 klukkutímar þegar allt er tekið saman. Þá eru hrossin einungis dæmd í reiðdómi því byggingareinkun kynbótahrossana fylgir þeim frá því úr vorsýningu.
Ég tók saman alla kynbótadóma hrossa á Hólum 2016 og í Víðidal 2018 og bar saman aðaleinkunnir sem hrossin fengu inn á mót úr vorsýningum og á landsmóti. Gögnin er hægt að skoða í excel skjali og er hægt að hlaða niður viðhengi með þessari frétt. Þau birti ég með fyrirvara um innsláttarvillur.
Helstu niðurstöður gagnanna eru þessar:
Nú er ég ekki tölfræðingur en ég get dregið þá ályktun að af þessum tveim mótum að nærri 70% hrossa standa í stað eða lækka frá vorsýningunum. 2% breyting á aðaleinkunn hests sem er með 8.43 í aðaleinkunn inn á mót er plús eða mínus 0,07. Meðaltalsbreyting á aðaleinkunnum allra hesta í Víðidal var -1,81% og á Hólum -0,56%.
Er þá þessi 5 daga, rúmlega 50 klukkutíma, endurdæming að skila einhverjum betri upplýsingum til ræktenda?
Vert er að geta þess að inni í þessari tölu hér að ofan er ekki verðlaunaafhending afkvæmahesta og úrvalssýning kynbótahrossa á laugardegi, um 7 klukkutímar samkvæmt dagskrá landsmóts í Víðidal.
Þegar flestir gestir eru mættir á Landsmót á fimmtudegi og föstudegi er yfirlit kynbótahrossa og margir spenntir að sjá rjóma íslenskrar hrossaræktar í brautinni. En gestir eru enn að horfa á hrossin í reiðdómi og eins og venja er á yfirliti eru verið að reyna að laga það sem miður fór í forsýningu eða að reyna að fá betra fyrir gangtegundir sem eru slakar í viðkomandi hesti. Þannig er mikið um fetgang hjá hrossum með ójafnt fet, ferðlítið brokk eða sviflítið stökk svo dæmi sé tekið. Er þetta besta kynningin á hrossunum fyrir landsmótsgesti?
Það eru margir sem vilja liggja yfir kynbótasýningum á landsmóti og sjá með eigin augum hrossin og máta þau við tölurnar sem þau hafa fengið. En tímarnir hafa breyst og núna voru til dæmis allar vorsýningar ársins 2020 teknar upp og því hægt að sjá myndbönd af hrossunum á Worldfeng og á netinu og meta þau þar.
Að sleppa endurdæmingu á kynbótahrossum sparar tíma og ekki síður kostnað fyrir mótshaldara, ræktendur og gesti mótsins.
Það er skoðun mín að landsmót eru of löng. Fæstir hafa úthald í 7 daga mót. Eins og gjarnan er þegar landsmót ber á góma höfum við margar og ólíkar skoðanir á þeim. Mótið eru hátíð okkar hestamanna og öll viljum við að mótin uppfylli þær vonir og væntingar sem sýnendur, ræktendur og gestir gera til landsmóts.
Með því að taka upp svipað fyrirkomulag og landssýningin var í sumar er hægt að búa til frábæran dagskrárlið á landsmóti þar sem íslenskri hrossaræktar væri gert mun betri skil heldur en nú er gert.
Einar Gíslason
Fyrir áhugasama er hægt að smella á skjalið hér fyrir neðan og skoða alla útreikninga Einars á þessum tveimur Landsmótum sem um ræðir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH