Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins
Jakob Svavar Sigurðsson á Konsert frá Hofi á Reykjavíkurmeistaramóti í sumar. Mynd: Henk Peterse
Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2020 en valið var kunngjört rétt í þessu í höfuðstöðvum LH í Laugardal. Jakob átti gott ár á bæði keppnisbraut og kynbótavelli og sýnir ávallt prúða og fagmannlega reiðmennsku.
Einnig voru knapar ársins í eftirtöldum greinum valdir:
- Efnilegasti knapi ársins – Glódís Rún Sigurðardóttir
- Íþróttaknapi ársins – Ragnhildur Haraldsdóttir
- Gæðingaknapi ársins – Hlynur Guðmundsson
- Kynbótaknapi ársins – Árni Björn Pálsson
- Skeiðknapi ársins – Konráð Valur Sveinsson
Keppnishestabú ársins var valið Árbæjarhjáleiga 2, Kristinn Guðnason og Marjolijn Tiepen.
Eiðfaxi óskar öllum þessum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangur ársins!
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt