Eyjólfur toppar í KS-deildinni

  • 2. apríl 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
500 þúsund krónur fyrir fyrsta sætið

RÓSBERG ÓTTARSSON:

Á miðvikudagskvöldið fór fram lokakvöld K.S deildarinnar í Svaðastaðhöllinni. Lokagreinarnar voru smali og skeið. Fyrir mótið stóð Eyjólfur Þorsteinsson best að vígi með 24,5 stig en skammt að baki honum komu Bjarni Jónasson með 20,5 stig og þar á eftir  Árni Björn Pálsson og Ólafur Magnússon jafnir með 16 stig. Smalakóngur Skagfirðinga Magnús Bragi Magnússon var talinn sigurstranglegur í smalanum  með Frama frá Íbishóli en þeir félagar höfðu sigrað tvisvar áður. Það komst enginn nálægt þeim félögum og þeir fóru í gegnum forkeppnina  undir 40 sekúndum og með engin refsistig. Níu efstu hestar  fóru í úrslit og höfðu menn á orði að árangur Magnúsar og Frama í forkeppninni yrði ekki endurtekinn en viti menn, þeir endurtóku leikinn fóru aftur í gegnum brautina án refsistiga og sigruðu glæsilega. Eyjólfur Þorsteinsson varð svo annar á Bróður frá Stekkjardal og var nánast búinn að tryggja sér sigurinn í heildarkeppninni fyrir skeiðið.

 Það voru mörg góð hross í skeiðinu og þrátt fyrir mikla keppni um sigurlaunin sem eru 500.000 krónur þá lánaði Eyjólfur sínum aðal keppinauti Bjarna Jónassyni skeiðhestinn Hrapp frá Sauðárkróki. Það dugði Bjarna ekki og hann náði ekki í stig í skeiðinu. Eyjólfur varð níundi og náði sér í eitt stig en sigurvegari varð Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli sem fór sprettinn á 4,97 sek en næstur kom Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjamóti á 4,99 sek. Á þessari stundu var endanlega ljóst að Eyjólfur væri sigurvegari Meistaradeildar Norðurlands 2011 og Árni Björn Pálsson hefði skotist  uppfyrir Bjarna Jónasson með sigrinum í skeiðinu og hafnað í öðru sæti, með einu og hálfu stigi meira en Bjarni. Sex neðstu knaparnir féllu úr deildinni og þurfa að spreyta sig í forkeppni á næsta ári ætli þeir sér áframhaldandi þátttöku. Eyjólfur er vel að sigrinum kominn. Hann hefur verið afar farsæll í keppni undanfarið. Hestakostur hans er góður og er þá sama á hvaða grein er horft.  Spjallað verður við Eyjólf Þorsteinsson í næsta tölublaði Hestablaðsins.

 Úrslit Smali

1. Magnús Bragi Magnússon Frami frá íbishóli

2. Eyjólfur Þorsteinsson Bróðir frá Stekkjardal

3. Ragnar Stefánsson Hvöt frá Miðsitju

4. Þorsteinn Björnsson Kóngur frá Hólum

5. Bjarni Jónasson Lipurtá frá Varmalæk

6. Ólafur Magnússon Kæla frá Bergstöðum

7. Tryggvi Björnsson Óvissa frá Grafarkoti

8. Elvar Einarsson Muggur frá Sauðárkróki

9. Árni Björn Pálsson Korka frá Steinnesi

 

Skeið

1. Árni Björn Pálsson Ás frá Hvoli 4,97

2. Elvar EinarssonKóngur frá Lækjamóti 4,99

3. Þórarinn Eymundsson Bragur frá Bjarnastöðum 5,1

4. Erlingur Ingvarsson Möttul frá Torfunesi 5,17

5. Tryggvi Björnsson  Gjafar frá Þingeyrum 5,19

6. Mette MannsethÞúsöld frá Hólum 5,21

7. Magnús Bragi Magnússon Fjölnir frá Sjávarborg 5,24

8. Sölvi Sigurðarson  Steinn frá Bakkakoti 5,28

9. Eyjólfur Þorsteinsson Spirna frá Vindási 5,28

 

Heildarúrslit 2011

:

Eyjólfur Þorsteinsson 33,5
2

Árni Björn Pálsson 27
3

Bjarni Jónasson 25,5
4-5

Ólafur Magnússon 20
4-5

Tryggvi Björnsson 20
6

Þórarinn Eymundsson 18
7

Magnús B Magnússon 13
8-9

Hörður Óli Sæmundarson 10
8-9

Elvar Einarsson 10
10

Sölvi Sigurðarson 9,5
11

Erlingur Ingvarsson 9
12

Mette Mannseth 8
13-14

Baldvin Ari Guðlaugsson 7
13-14

Ragnar Stefánsson 7
15

Ísólfur Líndal 6,5
16

Þorsteinn Björnsson 6
17-18

Jón Herkovic 0
17-18

Riikka Anniina 0

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link