Mun Sólbjartur sigra þetta árið ?
Fimmgangurinn á fimmtudaginn og ráslistarnir eru tilbúnir. Guðmundur Björgvinsson sigraði fimmganginn í fyrra á Sólbjarti frá Flekkudal. Þeir mæta báðir til leiks þó verður Guðmundur með annan hest og Sólbjartur með annan knapa. Ísólfur Líndal Þórisson verður á Sólbjarti en þeir sigruðu fimmganginn í Meistaradeild Norðurlands og verður gaman að sjá hvort þeim takist að sigra Meistaradeildina hérna fyrir sunnan.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir mætir með Héðinn Skúla en þau gerðu það mjög gott í fimmgangnum í fyrra, voru í 4.sæti. Sylvía og Héðinn Skúli voru einnig í öðru sæti á Íslandsmótinu sama ár og er því óhætt að segja að þau eru sigurstrangleg.
Sólbjartur og Héðinn Skúli eru einu hestarnir af þeim sem voru í A úrslitunum á síðasta ári sem mæta aftur til leiks.
Gaman verður að sjá Olil Amble og Álffinn frá Syðri-Gegnishólum en þetta mun vera frumraun hans í keppni. Sigurður V. Matthíasson var í öðru sæti í fyrra á Mætti frá Leirubakka en hann mætir með nýjan hest í ár, Gust frá Lambhaga.
Margir nýjir hestar eru skráðir til leiks svo það verður spennandi að sjá hverjir raða sér í 10 efstu sætin. Stigakeppnirnar eru enn galopnar en Olil trónir nú efst með 22 stig.
Húsið opnar kl. 17:30 og hvetjum við fólk til að mæta stundvíslega. Fjöldi tilboða verða í glænýjum veitingasal Ölfushallarinnar og alveg tilvalið að mæta snemma og fá sér gott að borða fyrir keppni.
Ráslisti:
- Reynir Örn Pálmason Greifi frá Holtsmúla Ganghestar/Málning
- Bergur Jónsson Strokkur frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan
- Ragnar Tómasson Þrenna frá Hofi Árbakki/Hestvit
- Sigursteinn Sumarliðason Kinnskær frá Selfossi Ganghestar/Málning
- Eyjólfur Þorsteinsson Safír frá Efri-Þverá Lýsi
- Ísólfur Líndal Þórisson Sólbjartur frá Flekkudal Spónn.is/Heimahagi
- Hinrik Bragason Þyrla frá Böðmóðsstöðum Árbakki/Hestvit
- Sigurbjörn Bárðarson Spói frá Litlu-Brekku Lýsi
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga
- Viðar Ingólfsson Heimur frá Votmúla Hrímnir/Export hestar
- Sigurður V. Matthíasson Gustur frá Lambhaga Ganghestar/Málning
- Guðmundur Björgvinsson Flaumur frá Auðsholtshjáleigu Top Reiter/Sólning
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir Eldey frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga
- Olil Amble Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Gangmyllan
- Sigurður Sigurðarson Frægur frá Flekkudal Lýsi
- Árni Björn Pálsson Oddur frá Breiðholti í Flóa Auðsholtshjáleiga
- Daníel Jónsson Penni frá Eystra-Fróðholti Gangmyllan
- Eyrún Ýr Pálsdóttir Eva frá Mið-Fossum Hrímnir/Export hestar
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Kolgríma frá Minni Völlum Top Reiter/Sólning
- Hulda Gústafsdóttir Birkir frá Vatni Árbakki/Hestvit
- Leó Geir Arnarsson Gjöll frá Skíðbakka III Spónn.is/Heimahagi
- John K. Sigurjónsson Konsert frá Korpu Hrímnir/Export hestar
- Teitur Árnason Maríus frá Hvanneyri Top Reiter/Sólning
- Guðmar Þór Pétursson Flosi frá Búlandi Spónn.is/Heimahagi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH