Keppni í hestaíþróttum heimil að nýju
Nýjar sóttvarnarreglur taka gildi 13. janúar með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Sóttvarnaryfirvöld hafa samþykkt sóttvarnarreglur fyrir hestaíþróttir og eru þær birtar á heimasíðu LH.
Í nýjum sóttvarnarreglum eru æfingar og keppni heimilar með ákveðnum takmörkunum og eru mótshaldarar beðnir um að kynna sér reglurnar vandlega.
- Reglurnar gilda um óákveðin tíma, eða þar til næsta reglugerð heilbrigðisráðherra verður gefin út.
- Æfingar og keppni eru heimilaðar.
- Mikilvægt er að skráning iðkenda á æfingum sé nákvæm til að auðvelda smitrakningu.
- Iðkendum er óheimilt að nota sameiginlega félagsaðstöðu.
- Ekki er mælt með notkun andlitsgríma við íþróttaiðkun
Reglur varðandi keppni:
- Áhorfendur eru bannaðir.
- Mótshaldarar ættu ekki að útvega veitingar fyrir starfsfólk eða keppendur. Allar veitingar sem einstaklingar taka með sér skulu vera í lokuðum umbúðum.
- Skipta þarf mótssvæði upp í ytra rými (starfsmannasvæði) og innra rými (keppnissvæði).
- Hámarksfjöldi í rými á keppnissvæði er 50 manns.
- Hámarksfjöldi í rými á starfsmannasvæði er 20 manns.
- Mótshaldarar bera ábyrgð á að tryggja 2ja metra nálægðartakmörk milli allra ótengdra aðila.