Áhugamannadeild Equsana hefst þann 4 febrúar

  • 14. janúar 2021
  • Fréttir

Ein áhugaverðasta keppnisröðin í hestaíþróttinni á Íslandi hefst með keppni í fjórgang fimmtudaginn 4 febrúar kl. 19:00.

Góðu fréttirnar í dag eru að keppni í hestaíþróttum má hefjast en án áhorfenda. Við vonum samt að þegar líða tekur á veturinn þá verði staðan breytt og við getum þá notið þess að vera með keppnina með dyggum aðdáendum deildarinnar í höllinni en þangað til þá bjóðum við uppá beinar útsendingar frá keppniskvöldunum.

Áhugamannadeild Equsana hefur gert samkomulag við Alendis TV sem mun sýna beint frá keppninni í allan vetur.  Hægt er að kaupa dagsáskrift á kr. 2490 eða mánaðaráskrift á kr. 3490 og fá þá í leiðinni aðgang að öðrum viðburðum sem Alendis TV sýnir beint frá.  Hægt er að nálgast áskrift á www.alendis.tv

Dagskrá deildarinnar er :

Fimmtudagur 4 febrúar:  Fjórgangur

Fimmtudagur 18 febrúar:   Fimmgangur

Fimmtudagur 4 mars:   Slaktaumatölt

Fimmtudagur 18 mars:   Tölt – lokakeppni

Í ár munu 13 lið keppa í deildinni og hafa orðið töluverðar breytingar á liðskipan í flestum liðum.  Í næstu viku byrja kynningar á liðum, knöpum og þjálfurum en liðin sem keppa í ár eru:  Voot-liðið, Hofstaðir/Úrvalshesta/Votamýri-liðið,  Lið Heimahaga, Lið Vagna og Þjónustu, Lið Pure North, Lið Tölthesta, Lið Stjörnublikks, Lið Camper Iceland, Lið Húnvetningana, Lið ZO-ON, Lið Hvolpasveitarinnar, Lið Fákafars og Lið Kaffivagnins.

Spennan er mikil og æfingar eru löngu hafnar.

Minnum á facebook síðuna – Áhugamannadeild Equsana og instagrammið  #ahugamannadeildspretts

Hlökkum til að „sjá“ ykkur á Alendis TV fimmtudaginn 4 febrúar kl. 19:00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link