Ein stærsta folaldsýning ársins
Minnum á eina stærstu folaldasýningu ársins sem verður haldin á Sörlastöðum, félagssvæði hestamannafélagsins Sörla Hfj, laugardaginn 5.mars n.k.
Kaffi og veitingasala verður á staðnum og er þetta frábær fjölskylduskemmtun. Nokkur folöld sem hafa mætt til leiks til okkar á Sörlastaði á sl árum hafa gert garðinn frægan á kynbótabrautinni t.d. Kolskeggur, Herjólfur og Herkúles.
Dómarar eru Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktar ráðunautur og Magnús Benediktsson.
Folatollar verða á uppboði og einnig í verðlaun fyrir úrslitafolöldin og eru þeir ekki af verri endanum!
Uppboðs og verðlaunatollar eru:
Ölnir frá Akranesi
Skýr frá Skálakoti
Jarl frá Árbæjarhjáleigu
Steggur frá Hrísdal
Trausti frá Þóroddstöðum (hæst dæmdi 4 vetra foli ársins 2015)
Eldjárn frá Tjaldhólum
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Boði Breiðholti Garðabæ
Hljómur frá HerríðarhóliSkráning er í fullum gangi og skal senda skráningar á netfangið [email protected]
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
-Nafn folalds, uppruni og IS númer
-Nöfn móður og föður folalds
-Litur
-Eigandi og ræktandi folaldsSkráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509
Skráningu lýkur á miðnætti, fimmtudaginn 3.mars.
Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið [email protected] með nafn folalds sem skýringu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH