Árbók Eiðfaxa – Leiðrétting
Árbók Eiðfaxa 2020 á nú að vera komin í hendur áskrifenda, auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum. Við hjá Eiðfaxa þökkum kærlega fyrir þær jákvæðu viðtökur sem bókin hefur fengið og það hvetur okkur til að halda áfram á sömu leið.
Við höfum jafnframt fengið nokkrar ábendingar um það sem betur má fara og þökkum það. Því miður flæktust nokkrar staðreyndavillur einnig inn í bókina og er okkur ljúft og skylt að koma eftirfarandi leiðréttingum á framfæri:
- Bls.122 – Hilmir frá Árbæjarhjáleigu var sýndur af Árna Birni Pálssyni.
- Bls. 126 – Prins frá Vöðlum er undan Pistil frá Litlu-Brekku og Erlu frá Halakoti.
- Bls. 138 – Ronja frá Hólaborg er undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Rán frá Þorkelshóli 2.
- Bls. 138 – Dúfa frá Bergsstöðum er undan Sjóð frá Kirkjubæ og Gyðju frá Ytra-Vallholti.
- Bls. 151 – Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli er undan Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 og Orku frá Hvolsvelli.
- Bls. 154 – Fold frá Flagbjarnarholti er undan Óm frá Kvistum og Gyðju frá Lækjarbotnum.
- Bls. 158 – Vör frá Vestri-Leirárgörðum er undan Aðli frá Nýjabæ og Vá frá Vestri-Leirárgörðum.
- Bls. 158 – Bylgja frá Seljatungu er undan Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og Kviku frá Syðri-Gegnishólum.
- Bls. 213 – Ræktandi Hendingar frá Úlfsstöðum er Helgi Friðriksson.
- Bls. 217 – Sýnandi Gnáar frá Ytri-Skógum var Þórður Þorgeirsson.
- Bls. 272 – Topplisti yfir hæstu aðaleinkunnir ársins án skeiðs er ekki réttur, efstu sjö hrossin á listanum eru alhliða.
Við biðjum alla hlutaðeigandi velvirðingar á þessum mistökum og vonum að þeir virði viljann fyrir verkið.