Viltu læra póló?
Póló kynningarfundur verður haldinn í Harðarbóli á morgun laugardaginn 8. desember kl. 10.
„Morgunkaffi á staðnum. Farið verður yfir leikreglur og sýnt kynningar- og kennslumyndband. Kylfur og annar búnaður verður til sýnis á staðnum og teknar niður pantanir á kylfum og hlífum fyrir þá sem það vilja. Kennsla hefst svo í Pólóleik í reiðhöllinni í vetur,“ segir á heimasíðu hestamannafélagsins Harðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH