Vetrarmót hjá Smára
Annað vetrarmót Smára verður haldið laugardaginn 17. mars kl. 14 að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd félagsins:
„Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Pollaflokkur
- Barnaflokkur
- Unghrossaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Fullorðinsflokkur 2. Flokkur
- Fullorðinsflokkur 1. Flokkur
Skráning er á staðnum. Skráning hefst kl. 12:45 og lýkur kl. 13:45.
Skráningargjald er 500 kr. á hest, frítt er fyrir polla og barnaflokk.
Pollarnir verða inn í reiðhöllinni en aðrir flokkar á vellinum.
Minnum á næsta Vetrarmót sem verður laugardaginn 14.apríl
Nánari upplýsingar á smari.is.
Með von um góða þáttöku.
Mótanefnd.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH