Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum – Lið Söðulsholts

  • 3. febrúar 2021
  • Fréttir

Næsta lið sem við viljum kynna fyrir ykkur er lið Söðulsholts, sem er einnig eina strákaliðið í vetur.

Liðstjórinn er Bjarki Þór Gunnarsson, 29 ára. Starfar sem bústjóri/tamningarmaður að Söðulsholti. Menntaður reiðkennari og tamningarmaður frá Háskólanum á Hólum.

Jón Bjarni Þorvarðarson, hrossabóndi Bergi. Einu ári eldri en í fyrra, starfar að þjálfun hrossa á búinu og hefur verið í deildinni frá upphafi fyrir utan árið í fyrra.

Leifur Gunnarsson 30 ára. Tamningarmađur á Skipaskaga. Reiðkennara menntaður frá Hólum.

Sigurður Rúnar Pálsson, 28 ára. Starfar sem tamningamaður á Dallandi og er menntaður reiðkennari og tamningamaður frá Háskólanum á Hólum. Sigurður tók þátt í fyrra í Vesturlandsdeildinni.

Siguroddur Pétursson. Starfar sem tamningamaður í Hrísdal. Hann hefur verið mjög sýnilegur á keppnisbrautinni og gengið gríðarlega vel. Siguroddur er einnig í liði í Meistaradeildinni í vetur en hann hefur verið með í Vesturlandsdeildinni frá upphafi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link