Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum – Lið Hestalands
Næsta lið sem við viljum kynna fyrir ykkur er lið Hestalands
–
Liðstjórinn er Guðmar Þór Pétursson, hann er menntaður reiðkennari frá Hólum þar sem hann starfaði sem reiðkennari um tíma. Guðmar bjó í Bandaríkjunum í nokkuð mörg ár en flutti aftur til Íslands 2013. Núna rekur hann Hestamiðstöð og ferðaþjónustuna Hestaland. Þetta er fimmta árið sem Guðmar er með í Vesturlandsdeildinni en hann hefur keppt þó nokkuð mikið í gegnum árin og var m.a. í Meistaradeildinni í nokkur ár
–
Linda Rún Pétursdóttir er 32 ára menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og þar starfaði hún einnig sem reiðkennari um tíma. Linda starfar nú hjá Hestalandi. Þetta er 5. árið hennar í Vesturlandsdeildinni með barneignarpásu. Linda hefur keppt mikið frá barnsaldri bæði hérlendis og erlendis með ágætis árangri.
–
Snorri Dal Tamningarmaður og Reiðkennari Reiðkennari frá Hólum Landsmótsigurvegari í B flokk og 150 m skeiði. 2x Íslandsmeistari í 4 g, tölti og 2 x í samanlögðum fjórgangsgreinum. Þetta er annað árið sem Snorri tekur þátt í Vesturlandseildinni.
–
Anna Björk Ólafsdóttir stundar tamningar, þjálfun og kennslu í Hafnarfirði ásamt manni síum og liðsfélaga Snorra Dal.
–
Ísólfur Ólafsson, 21 árs, starfar við tamningar, þjálfun og járningar í Borgarnesi. Hann hefur stundað hestamennsku allt sitt líf og með mikinn keppnisárangur. Þetta er þriðja árið sem Ísólfur tekur þátt í Vesturlandsdeildinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH