Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Meistaradeild ungmenna hefst í kvöld – lið Icehest

  • 5. febrúar 2021
  • Fréttir

Kristófer Darri Sigurðsson er liðsstjóri liðs Icehest í Meistaradeildinni. Mynd: Aðsend

Fimmta og síðasta liðið sem við kynnum til leiks er lið Icehest

Liðsstjóri er Kristófer Darri Sigurðsson. Hann er nemandi við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og stefnir á að keppa í öllum greinum.

Jóhanna Guðmundsdóttir vinnur við tamningar og þjálfun í Káragerði. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.

Arnar Máni Sigurjónsson er á 3. ári í Verslunarskóla Íslands. Hann stundar tamningar og þjálfun í Víðidal og stefnir á að keppa í slaktaumatölti.

Embla Þórey Elvarsdóttir er nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.

Keppni hefst í kvöld kl 19:00 í fjórgangi V1 og fer fram í Fákaseli í Ölfusi. 19 knapar taka þátt í kvöld og spennandi verður að sjá hver mun sigra.

Allir knapar eru búnir að undirbúa sig gríðarlega mikið og gaman verður að fylgjast með þeim á Alendis.is

En eins og allir vita þá er áhorfendabann á íþróttaviðburðum. Því verður Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju 2021 streymt beint á alendis.is þannig að endilega kaupið áskrift hjá þeim til að geta fylgst með deildinni í vetur.

Dýralæknar Sandhólaferju eru aðalstyrktaraðili deildarinnar og munu gefa Fagermél og gjafabréf í 1.sæti og svo einnig gjafabréf í 2 og 3 sætið.

Aðrir styrktaraðilar fjórgangsins V1 í kvöld eru

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link